Dvergó

24.01.2009 16:24:01 / Kári

PARTÝ FÖSTUDAGINN 30.JAN

Eins og venjulega er ég ekki sá skipulagðasti.. en ég vill bjóða ykkur öllum hingað til mín í partý í Erluhrauni síminn minn er 8655793 megið hringja ef þið ratið ekki :) en Gyða kærastan mín verður reyndar ekki hérna hún er að fara á sauðarkrók og þá ákvað ég að nýta tækifærið og bjóða öllum á brjálað djamm! hehe endilega kommenta eða senda mér mail eða eitthvað hvort þið komist eða what ever :)

Kári litli


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 19:15:04 / Gerður

Klukk á Gerði

Bonjour!

þá er komið að því að ég skrifa hérna í fyrsta skipti. Ég var að komast að því hvernig það er gert.
Hérna í Antibes er mjög afslappað og fínt, ekkert jólastress og læti. 
Veðrið er milt og sól flestalla daga. Við búum í lítilli íbúð á tveimur hæðum í þröngri, hellulagðri götu í gamla bænum.
Við heyrum í harmónikku-músík innum gluggann, þar sem gatan okkar liggur útfrá göngugötu bæjarins,
á horninu situr oft gamall kall með franska húfu að spila. Það er mjög kósí.
Það besta er hvað okkur líður vel að öllu leyti, við erum við sjóinn og útsýnið er ótrúlegt upp til alpanna, 
sjáum til Nice og svo er Cannes hérna hinu megin við hæðina. 
Í þessum litla bæ okkar er næststærsta snekkjuhöfn í heimi, semsagt siglingaparadís.
Ekki skemmir fyrir að það er stutt yfir landamærin til Ítalíu sem ég sakna á nánast hverjum degi, 
stutt í Spán og Barcelona í hina áttina sem ég held sérstaklega mikið uppá, og nokkrir tímar til Parísar með lest! 
Það versta er að við lendum í rifrildi við æst starfsfólk pósthússins í hvert skipti sem við þurfum að senda bréf eða pakka
(óvenjumikið af því undanfarið), 
þar sem ákveðnir aðilar þar halda því fram að ísland sé ekki í Evrópu,
og því þurfum við að borga sama gjald og til Japan!
Frikki er kominn í málið og við ætlum að láta laga þetta, mér er sko ekki sama, 
ég sýndi fólkinu á pósthúsinu að ísland sést greinilega á evruseðlunum svona til að reyna að plata það, en það virkaði ekki..

annars allt í góðu, sjáumst vonandi fljótt!

KLUKKIÐ

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
verkastelpa í hellulögnum og garðyrkju 
Barþjónn, bar soldi í Cremona
hmm..ekkert orð yfir þetta starf, en var að líma upp plaköt með lími og kúst fyrir kosningar á Ítalíu sumar 2004
hönnuður, freelance


Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
match point
crash
scoop
vicky christina barcelona (var að horfa á hana, góður fílingur í henni)


Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Norge (Ås)
vesturbærinn í Rvk
Italia (Milano & Cremona)
Frakkland (Antibes)


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
SEX AND THE CITY!
einu þættirnir sem ég hef horft á og haldið virkilega uppá
ok.. og kannski smá despó, annars horfi ég aldrei á sjónvarp og er ekki með það tengt heima hjá mér.


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Barcelona
Serbía (aðallega Belgrad)
Budva (Montenegro)
Cagliari (Sardíníu)


Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
mbl.is
gmail.com
gerdursteinars.com (þessa dagana, erum að vinna í henni)
wikipedia.org (þegar ég er forvitin)


Fernt sem ég held upp á Matarkyns:
mmm saltfiskcroquette
kartöfluréttir allsskonar
grillað grænmæti með salti og olíu
SÚKKULAÐI


Fjórar bækur sem mér finnst skemmtilegar (sem ég held mjööög mikið uppá):
Skuggar vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón
Paula eftir Isabel Allende
Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini
Yacoubian byggingin eftir Alaa el-Aswany
þarf ég að hætta núna...?


Fjórir Bloggarar sem ég ætla að Klukka:
ég ítreka þá sem aðrir hafa klukkað og hafa ekki enn svarað:
Gyða 
Óli 
Teitur
Tommi

Fjórir Staðir sem ég vildi helst vera á núna:

Barcelona
Cuba, að dansa salsa
Belgrad á geðveikum veitingastað utandyra þar sem ég sat í marga klukkutíma í maí sl.
að svamla í sjónum í Sardiníu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 14:36:00 / Kári

Klukk á mig

Jæja ætli maður verði ekki að taka við þessu klukki frá Rán frænku og vera dullegur og skrifa þetta niður... í tilefni þess að ég er að flytja frá henni móður minni og er að gerast Hafnfirðingur :)

Klukkið

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Tækjavörður,Tæknimaður og húsvörður í fjölskyldu og húsdýragarðinum
Dyravörður
Siglingaþjálfari/kennari
og siðast en ekki síst Kokkur á Hoffelli sem er bátur var að elda fyrir 15 svanga sjómenn

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Grease,  Danny Zuko fyrirmynd mín í lífinu
Godfather serían mjög skemmtilegar myndir
The Shawshank Redemption
Star wars 4,5,6 (gömlu myndirnar)

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Ås í Noregi
Mosó á nokkrum stöðum
Hellu hjá Pabba
og núna í Erluhrauni 2 Hafnarfirði

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Entourage geggjaðir þættir
Naruto Japanskir Anime þættir
Dexter ekki teiknimyndirnar
The Simpsons

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Ítalía
Danmörk
Spánn
Bretland samt á siglinga kennslu námskeiði en það var frí fyrir mér :D

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
B2.is
WoWhead.com já ég er tölvunörd
Skemmileggja.guildomatic.com/forums ennþá meira nörd
og síðast en ekki síst Facebook.co
m

Fernt sem ég held upp á Matarkyns:
Búkolla, sem er svona sub sem þú getur keypt í sjoppunum við Orku bensínstöðvarnar hjá Kringlunni
Serrano
Grillmat!
og Kjúkling sem mamma býr til :)

Fjórar bækur sem mér finnst skemmtilegar(breytti úr les oft)
Bækurnar hans Arnalds nema Harðskafi sem er ekki góð
The Hobbit
Tinna bækurnar.. fólk vill stundum meina að ég sé líkur honum
of Mice and men

Fjórir Bloggarar sem ég ætla að Klukka:
Gyða frænka
Gerður systir
Óli frændi
Teitur frændi

Fjórir Staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Antibes hjá Gerði og Frikka að skoða báta
í skemmtisiglingu
á sólarströnd í sólbaði
uppí íbúð að þrífa :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 23:12:55 / Arna

Matarboðið

hjá ömmu var bara kósí. Stuð að hitta alla, alltaf jafn gaman að sjá ykkur elsku frænkur/frændur :) Fékk smá spark í rassinn að setja e-ð hérna inn...vil svo fá comment frá ykkur sem kíkið! Jájájá.. Rán ætlar að láta vita hvenær hún kíkir suður í geðveikina næst og þá er spurning um að halda kannski partí, stemmari fyrir því eða? Kári er búinn að finna samkvæmisleik og hvaðeina - újé...dullegur hann brósi minn ;) Ætla að sjá til hvort ég nenni að setja inn e-ð af myndum..
hei...Ketill er víst með blogg, komst að því í kvöld og ætla að bæta slóðinni við tenglana hérna vinstra megin, endilega kíkja á það!
arna

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 13:17:24 / Rán

Klukk

Hérna kemur svarið mitt og klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Unglingur á LSP (það stóð alltaf á launaseðlunum þangað til ég varð 16)

Sundþjálfari hjá Breiðablik

Sumarstarfsmaður á Lyngási

Líffræðingur hjá Hólaskóla – Háskólanum á Hólum

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Mamma mia - eins og Arna brosti ég allan hringinn

Amélie - tær snilld, hélt ég væri að fara á hádramatíska mynd – en veinaði af hlátri allan tímann

Chocolat – súkkulaði er sætt og gott + Johnny Depp er sætur og góður = fullkomin blanda

Diarios de motocicleta –Dáist líka að fólki sem lifir eftir sannfæringu sinni sama hvað það kostar.


Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjalundur
Kópavogur
Rheinfelden í Þýskalandi

Hólar í Hjaltadal

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Wind in the willows - snilldar þættir fyrir börn á öllum aldri

Jeeves and t="on" />t="on" />Wooster – breskur húmor og orðaleikir eins það gerist best

Klovn – eins og þeir geta verið pínlegir á að horfa tímir maður ekki að missa af þeim

Þættir Davids Attenborough – kallinn er alltaf jafn flottur

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Perú

Bólivía

t="on" />t="on" />Chile

Indónesía

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
mbl.is

eyjan.is

feykir.is

baggalutur.is

Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Lambakjöt – upp fyrir íslenskum landbúnaði

Folaldakjöt – nautasteik hvað?

Knödel

Súkkulaði

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Sjaldgæft að ég lesi sömu bókina oftar en einu sinni…nema kannski ensk-íslensku orðabókina

The silent deep – ætti að vera skildulesning í skólum landsins ásamt Silent spring

Allar bækur sem ég kemst yfir eftir Isabel Allende

Serían um Kvenspæjarastofu númer eitt

Bróðir t="on" />t="on" />minn Ljónshjarta

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka:
Teitur

Kári

Tommi

Gyða

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Er bara nokkuð sátt þar sem ég er núna – heima
Annars langar mig líka að kíkja til
Galapagos
Madagaskar
Nýja Sjálands


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 19:18:02 / Arna

Svo mikið að gera..

....en hér kemur smá...

Kalli frændi klukkaði mig fyrir svolitlu síðan...

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Smíðavinna, vann við að smíða barnaleiktæki, rólur, kastala, sandkassa ofl.
Handlangari með pabba eitt sumar.
Barþjónn og „kokkur“ um borð í Lagarfljótsorminum.
Á Heilsuhælinu í Hveragerði að leysa sjúkraþjálfara og íþróttakennara af.

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Mamma mia, síðasta myndin sem ég sá í bíó, brosti hringinn þegar ég kom út (í bæði skiptin).
Grease, ég og Gerður systir erum búnar að horfa á hana endalaust oft , allt of langt síðan síðast samt..
Ronja ræningjadóttir, horfði mikið á hana þegar ég var yngri, rassálfarnir eru í sérstöku uppáhaldi.
Zoolander, þvílíkt fyndin, get horft á hana aftur og aftur.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Ås – í Noregi
Mosfellsbær
Fáskrúðsfjörður
Reykjavík

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
KLOVN!!
House
Despó
Sex and the city

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Danmörk
Spánn
Ítalía
Krít

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
Skoða þessar kannski ekki daglega...en næstumþví..
Hi.is
Mbl.is
Facebook.com
Visir.is

Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Fiskisúpan hennar ömmu
Grillaður kúrbítur
Andabringur
Súkkulaði

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Man ekki eftir neinum bókum sem ég hef lesið oft...en bækur sem mér finnast góðar eru:
Mýrin og aðrar bækur eftir Arnald
Da Vinci lykillinn
Brennd lifandi
Draumalandið

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka:
Helga vinkona
Linda Birgis
Rán frænka
Egill frændi

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Þar sem ég er í augnablikinu, heima er alltaf best
Á ættarmótinu sem var í sumar
Í bekkjarpartíi..bekkurinn minn er snilld
Á sólarströnd að slappa af

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 18:05:33 / Teitur

Síðustu tónleikar Sleeps like an angry bear í ár.

Hæhæ

Síðustu tónleikar okkar bræðra verða núna föstudaginn 19. sept. Í Kaffi Hljómalind og byrja tónleikarnir kl. 20:00 við stígum á stokk um 21:00.

Hljómsveitirnar sem að verða með okkur eru Morri, The best hardcore band in the world og Deathmetal supersquad..

Endilega mæta ef að þið sjáið ykkur fært :lol:

kv.
Teitur

Ef að við veltið fyrir ykkur afhverju þetta eru síðustu tónleikarnir okkar í þetta langan tíma er ástæðan einfaldlega sú að Egill er að fara út til Englands í nám í næstu viku. Þetta er því einnig kjörið tækifæri að kveðja hann og óska honum velgengni í útlöndum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2008 18:12:37 / Teitur

Tónleikar með bræðrum sem sofa sem reiðir birnir

Hæhæ öll sömul...
Takk fyrir síðast.
Ég vildi bara endilega segja ykkur frá því að við bræðurnir munum spila á tónleikum í Álafosskvos núna á morgun( ég veit, lítill fyrirvari!!!)
Tónleikarnir hefjast kl. 16:30 og eru 3 önnur bönd að spila á undan okkur. Hljómsveitirnar The Nellies, Furry strangers og 50 years since victory.
Ef að þeir sem að eru á landinu eða sama landshluta sjá sér fært að koma væri æðislegt að sjá sem flest sem að lesa þetta blogg.

kv,
Elsti bróðirinn sem sefur sem reiður björn

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 20:40:55 / Arna

Takk fyrir síðast!!

Jámm, það var að sjálfsögðu stuð á okkur frændsystkinunum í gær. Gaman, gaman, við svo skemmtileg!
Þakka Stulla og Ágústu fyrir lán á húsi og Rán og Tomma fyrir góðan mat!
Hekla var aðalljósmyndari kvöldsins, ég á eftir að skoða afraksturinn..set inn myndir þegar ég hef tíma.
Var að setja inn langþráðar myndir frá ættarmótinu :haha: Endilega kíkið á það! Væri líka alveg til í að fá annaðhvort kvitt í gestabók eða athugasemd frá þeim sem kíkja inn...eftir því sem fleiri taka þátt í að halda lífi í þessari síðu því meira hvetjandi er að setja e-ð inn á hana!!
Jájájá! Verð að fara að leggjast aðeins upp í sófa og hvíla mig...svaf allt of lítið í nótt af því að þið voruð svo skemmtileg og var svo á námskeiði frá 9 til 17:30 í dag þar sem ég tók vel á því-svooo dugleg :$
Jæja elskurnar mínar, sófinn kallar.
Luv, arna

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 13:08:05 / Rán

Partý 8. ágúst?

Sæl öll sömul og takk fyrir síðast. Ég skemmti mér konunglega á ættarmótinu og er þegar farin að hlakka til þess næsta. En hver hefði trúað því að maður gæti sólbrunnið á Tanganum? 8)  Ég segi eins og Arna að hápunktur samkomunnar var tónlistaratriði þeirra bræðra.

Ég kom bara heim í gær og heimkomusýkin hefur ekki enn gert vart við sig, enda tók Skagafjörður á móti mér með sól og 20 stiga hita :haha: þegar ég kom í gærmorgun. />

/>Fyrsta verk dagsins var að fara með þann Risasmáa í skoðun, sem hann stóðst fyllilega mér til ómældrar ánægju en mér leiðist allt svona umstang í kringum bíla. />

>Þegar heim í dalinn var komið byrjaði ég á því að hlaða niður öllum myndunum sem ég tók í síðustu viku. Ykkur til fróðleiks þá keypti ég 2 GB myndavélakort í BNA sem er stórt stökk frá 256 MB kortinu sem fylgdi vélinni. Til allrar hamingju lét ég ekki verða af því að kaupa 4 eða 8 GB kort eins ég ætlaði upphaflega (en safnaragenið vill stundum verða ríkjandi þar sem maður vill eignast það sem er stærst og mest en ekki endilega hagkvæmast), því það væri margra daga vinna að tæma slíkt kort með þeim tækjakosti sem ég hef í dag. Það tók um 2 ½  tíma :$ að hlaða þeim rúmlega 800 myndum sem ég tók í síðustu viku (og enn hafði ég pláss fyrir 300 aðrar myndir). Í framhaldinu verður svo ekki minni vinna að fara í gegnum allan þennan pakka, flokka og henda út misheppnuðum myndum. En þegar því verður lokið hendi ég kanski nokkrum inn á síðuna. En ekki bíða of spennt því ég veit ekki hvenær það verður. En ég hlakka til að sjá myndirnar frá Örnu úr rólustökkkeppninni, held að þær geti verið nokkuð skemmtilegar :lol: />

>E>n að öðrum málum. Frændsystkinapartý 8. ágúst – er einhver stemmning fyrir því? M&P eru tilbúin að lána okkur húsið þetta kvöld. Endilega látið í ykkur heyra. />


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 22:56:37 / Arna

Heimkomusýki

Takk fyrir síðast allir! Ég skemmti mér þvílíkt vel á ættarmótinu :) Er sko búin að vera með heimkomusýki að hætti Kalla frænda síðan ég kom heim. Heimkomusýki er ekki þynnka þó það gæti kannski hljómað þannig.. heimkomusýki er þegar maður er kominn heim og saknar þess að vera á staðnum og vera með fólkinu – er það ekki rétt hjá mér Kalli?

Veðrið var geggjað gott, reyndar voru bara 2°c þegar ég fór að sofa á föstudaginn....og ég skalf úr kulda þangað til ég sofnaði. Alvöru íslenskur útilegufílingur! Annars bara sól og blíða. Ég tók slatta af myndum, er ekki búin að setja þær inn á tölvuna ennþá þannig að það verður e-r bið eftir þeim.

Hápunktur ættarmótsins var að mínu mati þegar Teitur, Egill og Júlíus spiluðu fyrir okkur! Var alveg geggjað, takk fyrir strákar :haha:

Það var bara endalaus gleði og hamingja alla helgina, rólustökkskeppni, víkingaspil, söngur, leikir, góður matur, skemmtilegt fólk.... Vona að ekki verði mjög langt í næsta ættarmót!

Megið gjarnan setja inn myndir ef þið eigið e-ar fínar og endilega skrifa athugasemdir!

Luv, arna


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 14:48:48 / Arna

ættarmót

Er rétt að fara að leggja af stað! Hlakka til hlakka til :d
Sjáumst..á eftir !!
arna

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 13:40:04 / Rán

Frændsystkinahittingur

Váá.......það leynist smá líf hérna   :d.>
>
Eins og svo oft áður átti ég langt næturspjall við Tomma um daginn og á þeim tímapuntki var hann til í frændsystkinahitting þann 8. ágúst sem er föstudagur. Ég veit ekki hvort hann kíki hér reglulega inn, en ég skal ræða betur við hann og láta ykkur vita hvernig fer. Mér líst ljómandi vel á Fljótshlíðina sem samkomustað og þakka gott boð. Ég er reyndar á leiðinni þangað í næstu viku að taka út byggingaframkvæmdir á Arngeirsstöðum og fæ kannski að kíkja í heimsókn niður fyrir veg.>
>

Ég hlakka til að sjá ykkur á föstudaginn .>
>

Bestu kveðjur, />

Rán />


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 17:52:16 / Gyða

Gyða bloggar

Hæ hæ öllsömul,
ég veit ekki hvort ég eigi að þora að segja ykkur frá því...
Eeeeen, ég kem ekki á ættarmótið!!! Það hefði samt verið rosalega gaman að hitta ykkur.
Ég ætla að syngja í brúðkaupi vinkonu minnar laugardaginn 18. og er svo boðin í veisluna líka :(  Ég yrði að leggja svo snemma af stað heiman frá mér ef ég ætlaði að mæta á skikkanlegum tíma norður, svo ég verð bara að mæta á næsta ættarmót!

En ég er sko til í hitting þegar Tommi frændi kemur. Hvenær verður hann á landinu? Það er óskaplega fallegt hérna á Suðurlandinu, á Hellishólum, ef einhver stemning er fyrir því :lol: Hér er t.d. hægt að fara í golf eða veiða, nú svo er líka bara alveg tilvalið að chilla svolítið hérna ;)

Knús á ykkur,
Gyða frænka

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 12:36:39 / Baldur

nýtt myndaalbúm

setti inn nokkrar myndir af okkur familíjunni.. en mest af þessum myndum eru þegar ég, Klara og Tommi fórum svmá skoðunarferð um bæinn og þurfti að stilla sér upp hér og þar :) Klara á nefninlega myndavél ;)

svona smá svo þið kannist við okkur þegar við komum ;) hehe
en njótið.
 


blehh
Linda Birgis


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 4834
RSS tengill
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2010