Dvergó

14.10.2008 13:17:24 / Rán

Klukk

Hérna kemur svarið mitt og klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Unglingur á LSP (það stóð alltaf á launaseðlunum þangað til ég varð 16)

Sundþjálfari hjá Breiðablik

Sumarstarfsmaður á Lyngási

Líffræðingur hjá Hólaskóla – Háskólanum á Hólum

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Mamma mia - eins og Arna brosti ég allan hringinn

Amélie - tær snilld, hélt ég væri að fara á hádramatíska mynd – en veinaði af hlátri allan tímann

Chocolat – súkkulaði er sætt og gott + Johnny Depp er sætur og góður = fullkomin blanda

Diarios de motocicleta –Dáist líka að fólki sem lifir eftir sannfæringu sinni sama hvað það kostar.


Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Reykjalundur
Kópavogur
Rheinfelden í Þýskalandi

Hólar í Hjaltadal

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Wind in the willows - snilldar þættir fyrir börn á öllum aldri

Jeeves and t="on" />t="on" />Wooster – breskur húmor og orðaleikir eins það gerist best

Klovn – eins og þeir geta verið pínlegir á að horfa tímir maður ekki að missa af þeim

Þættir Davids Attenborough – kallinn er alltaf jafn flottur

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Perú

Bólivía

t="on" />t="on" />Chile

Indónesía

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
mbl.is

eyjan.is

feykir.is

baggalutur.is

Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Lambakjöt – upp fyrir íslenskum landbúnaði

Folaldakjöt – nautasteik hvað?

Knödel

Súkkulaði

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Sjaldgæft að ég lesi sömu bókina oftar en einu sinni…nema kannski ensk-íslensku orðabókina

The silent deep – ætti að vera skildulesning í skólum landsins ásamt Silent spring

Allar bækur sem ég kemst yfir eftir Isabel Allende

Serían um Kvenspæjarastofu númer eitt

Bróðir t="on" />t="on" />minn Ljónshjarta

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka:
Teitur

Kári

Tommi

Gyða

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Er bara nokkuð sátt þar sem ég er núna – heima
Annars langar mig líka að kíkja til
Galapagos
Madagaskar
Nýja Sjálands

Rán skrifaði
Skil ekki af hverju fyrirsagnirnar koma ekki og nenni ekki að eyða meiri tíma í að spá í þetta.
En þið áttið ykkur strax á því hvað átt er við.

Bestu kveðjur,
Rán

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 4966
RSS tengill
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010